V-listi í Norðurþingi birtir lista

V-listi í Norðurþingi birtir lista

Í kvöld var birtur framboðslisti V-lista Vinstri grænna og óháðra til sveitarstjórnarkosninga í Norðurþingi.  Ég fæ þann heiður að leiða þennan lista eins og á núverandi kjörtímabili.  Þetta er frábær og breiður listi með öflugu fólki úr öllum áttum. Eiginlega mætti snúa honum á hvolf ef því væri að skipta.  Ég hlakka mikið til að vinna með þessu fólki næsta kjörtímabilið.

Framboðslisti Vinstri grænna og óháðra í Norðurþingi. (Á myndina vantar nokkur)

Fréttatilkynning sem send var út 23. apríl 2018:

V-listi Vinstri-grænna og óháðra í Norðurþingi hefur kynnt framboðslista til sveitarstjórnarkosninga árið 2018.

V-listinn hefur verið leiðandi í sveitarstjórn Norðurþings á líðandi kjörtímabili. V-listinn hefur átt stóran þátt í þeim mikla viðsnúningi sem náðst hefur í rekstri Norðurþings og komið mikilvægum málum í framkvæmd á tímabilinu.  Listinn býður nú fram með bæði reyndu og nýju fólki sem kemur víða frá  hinu víðfema svæði Norðurþings. Óli Halldórsson, formaður byggðarráðs Norðurþings á líðandi kjörtímabili leiðir listann. Annað sæti listans skipar Kolbrún Ada Gunnarsdóttur kennari og deildarstjóri, Berglind Hauksdóttir leikskólakennari í þriðja sæti og Sif Jóhannesdóttir þjóðfræðingur og sveitarstjórnarmaður í fjórða sæti. Guðmundur H. Halldórsson málarameistari skipar fimmta sætið og Röðull Reyr Kárason þjónustufulltrúi sjötta sætið.

V-listinn hefur nokkra sérstöðu meðal annarra framboða í Norðurþingi og víðar að því leyti að konur eru í afgerandi meirihluta á listanum. Auk þess að konur skipi þrjú af fjórum efstu sætunum þá eru þær 11 talsins á móti 7 körlum á listanum í heild. Með þessu vill V-listi Vinstri-grænna og óháðra sýna í verki að tími sé kominn til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnarmálum á Íslandi og draga fram þau áherslumál sem konum eru hugleikin í almannaþjónustu og forgangsröðun almennt.

FJÖLSKYLDAN og UMHVERFIÐ eru megináherslumál V-listans í Norðurþingi árið 2018. Málefnaskrá listans verður kynnt á Húsavík laugardaginn 28. apríl í tilefni af heimsókn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.

V- listi Vinstri græn og óháðra í Norðurþing fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 er eftirfarandi:

  1. Óli Halldórsson, Forstöðumaður,Húsavík
  2. Kolbrún Ada Gunnarsdóttir, Grunnskólakennari, Húsavík
  3. Berglind Hauksdóttir, Leikskólakennari, Húsavík
  4. Sif Jóhannesdóttir, Þjóðfræðingur, Húsavík
  5. Guðmundur H. Halldórsson, Málarameistari, Húsavík
  6. Röðull Reyr Kárason, Þjónustufulltrúi, Húsavík
  7. Nanna Steina Höskuldsdóttir, Verkefnastjóri og bóndi, Raufarhöfn
  8. Stefán L. Rögnvaldsson, Bóndi, Öxarfirði
  9. Aldey Traustadóttir, Hjúkrunarfræðingur, Húsavík
  10. Guðrún Sædís Harðardóttir, Grunnskólakennari, Reykjahverfi
  11. Selmdís Þráinsdóttir,  Ìþròtta-og heilsufræðingur, Húsavík
  12. Silja Rún Stefánsdóttir, Bústjóri, Öxafirði
  13. Aðalbjörn Jóhannsson, Verkamaður, Reykjahverfi
  14. Jóna Birna Óskarsdóttir, Leikskólaleiðbeinandi, Húsavík
  15. Aðalsteinn Örn Snæþórsson, Lífræðingur, Kelduhverfi
  16. Sólveig Mikaelsdóttir, Sérkennsluráðgjafi, Húsavík
  17. Trausti Aðalsteinsson, Afgreiðslustjóri, Húsavík
  18. Þórhildur Sigurðardóttir, Kennari, Húsavík